Danmörk, part 2
08. nóvember 2008 klukkan 17:15
Ok, hérna kemur þá seinni helmingurinn af ferðasögunni frá Danmörku 
Á föstudeginum þurftum við að vakna mjög snemma til að ná lestinni til Fredericia klukkan 7:45. Það var pínlegt að vakna svona snemma, en það tókst. Lestarferðin tók 2 tíma, en það var mjög nice. Ég hlustaði bara á i-podinn minn og sá útsýni af Danmörku. Þegar við komum til Fredericia, sem er á Jótlandi, tók á móti okkur sögukennarinn í skólanum sem við vorum að fara heimsækja. Hann hét Viggo og leit út eins og jólasveinninn. Hann var svo mikil dúlla og var alltaf brosandi
Við byrjuðum á að fá að borða í skólanum og síðan var okkur sýndur skólinn. Síðan þurftum við að sitja í kennslustund á dönsku og síðan sýna myndbönd sem við höfðum gert til að kynna Ísland og skólann okkar. Krakkarnir sem við sýndum þetta voru ekkert smá leiðileg. Samt ekki eins slæmir og þeir sem við lentum á í fyrra þegar ég fór til Köben. En krakkarnir voru sko að baktala okkur, og í lok tímans sagði Ágústa kennari við þau að við skyldum alveg dönsku þó við gætum ekki tjáð okkur á dönsku, og svipirnir á krökkunum voru priceless þegar þau áttuðu sig á því að við skyldum það sem þau voru að segja um okkur.

Eftir skóladaginn fórum við að skoða Fredericia, sem er ekkert smá fallegur bær (eða borg, veit ekki hvort það er). Það var svo friðsælt þarna og ég naut mín meir að labba þarna um heldur en í Kaupmannahöfn. Við enduðum daginn í Fredericia með að fara út að borða á ódýrum pizzastað í bænum. Síðan tókum við aftur lestina til Kaupmannahafnar.
Um kvöldið fórum við á einhvern pub rétt hjá gistiheimilinu en fórum fljótlega þaðan niður í bæ. En hópurinn tvístraðist þegar að Sara var eftir á McDonald’s að reyna við einhvern gaur sem var sofandi, hehe. Endaði með að við Linda tókum bara leigubíl heim á La villa en þá hittum við hinn helminginn sem hafði líka bara farið heim. Við vorum bara rólegar þetta kvöld og fórum snemma að sofa.
Ég, Linda og Sæunn vöknuðum um 11 leytið á laugardeginum til að fara í skoðunarferð með Sæmundi kennara, en enginn annar vaknaði til að fara þannig að við fórum bara einar með honum. Það var rosalega gaman, við sáum heilmikið í þessari siglingu. En það var samt helvíti kalt undir lokin, því við vorum auðvitað úti allan tímann, þannig sá maður meira. En eftir siglinguna fórum við í Field’s til að versla pínu, en við entumst ekki lengi þar inni og gáfumst upp fljótlega. En leiðin heim var skrautleg…. við ætluðum að taka metro-ið, en það var eitthvað að þannig að við þurftum að skipta um metro og það var troðið þar inni… síðan tókum við vitlausan metro og fórum út of snemma og þvílíkt dæmi… en sem betur fer endaði það vel, við náðum strætó og komumst heilar á húfi heim
Við fórum síðan fljótlega eftir það á Ráðhústorgið og hittum kennarana okkar og fórum öll saman að borða á McDonald’s á strikinu. Síðan fórum við á Sam’s bar, sem er karókí staður og Ágústa kennari söng eitt lag og sömuleiðið Magnús (a.k.a. Knúsi) tók eitt Rammstein lag. En það var svo dýrt að versla af barnum þarna, þannig að hópurinn fór aftur heim á gistiheimili og við fengum okkur áfengi í næstu seven eleven búð. Við fórum í tvo drykkjuleiki, en þeir entust ekki lengi. En eftir að hafa verið lengi upp á gistiheimili fór hópurinn út á djammið nema ég, Linda og Andri vorum eftir upp á gistiheimili og sátum öll með sitthvorar tölvurnar og vorum að lana..... hehe nei djók, en við spjölluðum bara og höfðum það bara rólegt.
Sunnudagurinn byrjaði bara eins og venjulega, nema helvítis kirkjuklukkurnar vöktu mig um 10 og þær hringdu endalaust, ég var að verða crazy. Ekki nóg með það, ég náði að sofna aftur, en þær byrjuðu að hringja aftur um 11. En við vorum vaknaðar þá, og byrjaðar að pakka niður, því þetta var seinasti dagurinn í Köben
Við kláruðum að pakka að mestu leyti og fórum síðan ég, Linda og Sara niður á Strik og versluðum aðeins meira fyrir restina af peningunum okkar. Síðan var bara farið upp á gistiheimili og farið fljótlega út á flugvöll. Við vorum samt komin helvíti snemma þangað og þurftum að bíða í 2 tíma eftir að fara í loftið. Flugferðin var sérstök. Sæunn byrjaði að æla áður en við fórum í loftið. Ég og Linda sátum hliðin á strák sem hafði mjög gaman af því hvað við vorum allar messed up. Ég að deyja úr flughræðslu, Linda með glösin sín á eyrunum og Sæunn ælandi hinum megin við ganginn. Síðan voru Linda og hann að gera í því að hræða mig í fluginu, eins og þegar Linda sagði “eru þetta ekki eldingar” mig langaði að deyja. Shit hvað ég var hrædd, en eftir smá tíma var ég orðin ónæm fyrir þessu, sem er nú gott
hehe.
Og hér með er ferðasagan búin… Ferðin var skemmtileg í alla staði.
Hef ekkert meir við það að bæta….
Kv. Halldóra

hehe.Og hér með er ferðasagan búin… Ferðin var skemmtileg í alla staði.
Hef ekkert meir við það að bæta….
Kv. Halldóra
Danmörk
05. nóvember 2008 klukkan 23:50
Þá er Kaupmannahafnarferðin bara búin :( og ég hef ekkert að hlakka til lengur. Það fer nú samt að styttast í jólin, sem er nú gott :) Ég ætla nú að skrifa smá ferðasögu frá Danmörku og hérna kemur allavega helmingurinn af henni... ég skrifa síðan restina á morgun eða hinn ;)
Flugvélin fór snemma í loftið á miðvikudagsmorgunin 29. okt og eins og alltaf, fríkaði ég út þegar við fórum í loftið, því ég er alltaf jafn flughrædd. Það náðu flestir í hópnum að sofna í vélinni nema ég. Við lentum á Kastrup um hádegið og fórum beint á gistiheimilið La Villa. Við stelpurnar fengum eigilega sér húsnæði, með tveimur baðherbergjum, mjög fínt. Síðan þegar að við vorum búin að ganga aðeins frá okkur, fór hópurinn að leita að veitingastað eða einhverjum stað til að borða á nálægt gistiheimilinu. Endaði með að við löbbuðum alveg heillengi í leit okkar og hópurinn tvístraðist. Endaði þá með að við vorum komin klukkutíma síðar á KFC á Ráðhústorginu þar sem við fengum loksins að borða.
Eftir það byrjaði dagskráin hjá kennurunum. Við löbbuðum aðeins um í Kaupmannahöfn, og enduðum í Christianiu. Við fórum út að borða þar á rosa fínum veitingastað, Spise Löppen. En eftir þennan dag var ég sko komin með hælsæri og var gjörsamlega að deyja því það var svo vont þegar blaðran sprakk. En við keyptum áfengi í Netto til að drekka sársaukan burt, hehe.
Um kvöldið voru við stelpurnar, ég, Linda, Hjördís og Sæunn, ásamt Magnúsi, bara rólegar upp á gistiheimili og spjölluðum, drukkum og spiluðum og höfðum það kósý.
Þetta var mjög góður dagur og jafnvel skemmtilegra kvöld. Það endaði með að við ætluðum snemma að sofa, en það gekk ekki alveg upp. Við fengum allar þvílíkan svefngalsa og hlógum endalaust og það tók okkur næstum 2 tíma að ná að sofna.

helvítis dópistar.... hehe
Það var nú erfitt að koma sér af stað á fimmtudagsmorgunin. Það tók alltaf soldin tíma hjá mér að setja peningana ofan í skóna hjá mér áður en ég fór út á morgnana (ég gerði þetta alltaf því ég ætlaði sko ekki að vera rænd, hehe). Við mættum pínu of seint hópurinn á Ráðhústorgið, þar sem við hittum Sæmund og Ágústu kennara. Og þá var bara beint farið að ganga um Kaupmannahöfn. Sem betur fer var ég í betri skóm en deginum áður því við löbbuðum í 6-7 klukkutíma. Við skoðuðum margt og mikið, Frúarkirkjuna, Rundetårn, kirkjuna á Strikinu, litlu hafmeyjuna, Jónshús og fleira. Við stoppuðum auðvitað og fengum okkur að borða á Det Lille Apotek, þar sem að var rosalega góður matur en mjög leiðinlegur íslenskur þjónn að afgreiða okkur. Og ekki nóg með það, þá kostaði kókglasið 1000 kr. íslenskar
Eftir daginn vorum við búin í fótunum og við stelpurnar bara kjömmuðumst upp í rúm og slökuðum á eftir langan dag. En síðan eftir að hafa slakað á í 1 eða 2 tíma eða svo fórum við með strætó aftur niður á Ráðhústorg og við fórum hópurinn út að borða á Jensens bofhus. Þar var maturinn jafnvel betri en á apotekinu. Eftir að hafa verið þar í dágóðann tíma splittaðist hópurinn og ég, Linda og Sæunn fórum upp á gistiheimili á meðan hinir voru eftir upp í bæ. Það var mjög kósý hjá okkur og síðan fórum við Linda bara snemma að sofa, annað en sumir, hehe. Því framundan var jafnvel lengri dagur....

En já, ég held áfram með þessa ferðasögu seinna... orðin frekar þreytt núna.
p.s. það eru komnar myndir inn á myspace hjá mér úr ferðinni ;)
kv. Halldóra

Guten Tag :)
24. október 2008 klukkan 17:16
Okey ég ákvað að byrja að blogga aftur, bara upp á gamanið, og í staðinn fyrir að búa til nýja síðu ætla ég bara að halda áfram með þessa gömlu góðu, þó svo ég hafi eytt öllum gömlu færslunum 
Annars er lífið ágætt hjá mér. Ég er orðin dauðþreytt á öllu þessu krepputali, ég veit að þetta er mjög alvarlegt og allt það, en þetta er bara alveg rosalega niðurdrepandi.
Núna ætti ég að vera lesa Othello fyrir ensku 603, en ég ákvað að taka mér góða pásu. Skólinn gengur bara mjög vel hjá mér, ég er búinn að vera fá góðar einkannir, og vonandi get ég haldið þeim uppi. Styttist óðum í lokapróf.
Síðan er ég að fara til Kaupmannahafnar á miðvikudaginn
Það ætti að vera gaman. Ég var samt að heyra það sama í gær og Elín gerir í London, að við ættum að segjast vera frá Færeyjum. Það ætti ekki að vera svo erfitt, þó ég vona að ég lendi ekki í þeirri stöðu að þurfa að ljúga. En ég hlakka rosalega til að fara út. Ég er að fara með skólanum,... aftur, hehe. Ég er í sérstökum sögu áfanga, saga Kaupmannahafnar, og við erum að fara til Danmerkur í tengslum við það. Ég er búin að kynnast nokkrum skemmtilegum stelpum úr þessum hóp, þannig að ég efast ekki um að þetta eigi eftir að vera skemmtileg ferð 
En ég held að þetta sé gott í bili,